05október

Drama.... where r u??



Halló halló...... Jæja... það eru ár og aldir siðan seinasta persóna bloggaði hér. Núna er Inga Hanna farin (*söknum þín*) og dramaæfingar eru ekki alveg að ganga.
En af hverju reynum við ekki samt að hittast, þau sem getum. Það væri gaman bara að hittast, tala saman... kannski æfa eitthvað. Eins og drama-ið sem fólkið frá Jesus Revolution komu með, sumir lærðu það. Af hverju ekki að reyna læra það? Við getum nokkur lært það og kannski getum við einhvernveginn reddað laginu. Ég hef ennþá samband við Heidi (kom með hópnum sem Hafsteinn var í, var með tónleika) og kannski get ég fengið nafnið á laginu og Benni (þú ert svo æðislegur í svona) getur kannski einhvernveginn hjálpað mér að redda laginu. Reynum að gera eitthvað.. :D

En hvað segiði.. þetta eru náttúrulega bara "draumar" frá mér... :D

Knús,
Tanja Rós

05. október 2006 klukkan 17:41
Tanja Rós Ívarsdóttir
Engin athugasemd
10maí

Hvađ finnst ykkur?

Hæhæ, Inga Hanna hér...
Bara að minna ykkur á óvissuferðina á föstudaginn klukkan 7 minnir mig, þá verður farið svo við þurfum að vera komin svona hálf7, það væri allavegana best! En svo var ég að spá, viljið þið hafa dramaæfingu á undan? (ef það er hægt vegna læknó) Eruð þið farin að sakna æfinganna eða eigum við að sleppa því þar sem við erum að fara í óvissuferð? Hvað finnst ykkur?!?
10. maí 2006 klukkan 05:41
Tanja Rós Ívarsdóttir
9 athugasemdir
03maí

Rock and Roll....



All Right!!! Wohó... geggt brjál...við erum á leiðinni í að vera komin á ról hérna á þessari síðu!!! Yess....

Það er dramaæfing á morgun og ALLIR að mæta!!! Fjör... *fön fön fön*!!!

Annars er ég að læra og hef ekki mikinn tíma til að skrifa!

Sjáumst!!!

03. maí 2006 klukkan 19:08
Tanja Rós Ívarsdóttir
Engin athugasemd
27apríl

DRAMA, DRAMA, DRAMA...

úje, Tinnan farin að blogga á þessa síðu líka:P

já, já allir að mæta á dramaæfingu á morgun erþaggi?

Tanja Rós var líka að tala um að gera blogg fyrir danshópinn líka. Wúhúúú!
27. apríl 2006 klukkan 23:46
Tanja Rós Ívarsdóttir
Engin athugasemd
26apríl

Vera dugleg ađ ţessu!


Jæja jæja... nú er bara að láta heiminn vita að við séum til! Við erum komin með þessa æðislegu nýju síðu... (með ógeðslega flottan banner)... og núna ætla allir að vera ROSALEGA duglegir að skrifa!!!

Fyrir þá sem vita ekki:
Þetta er síða dramahópsins í Veginum. Við hittumst alltaf á föstudögum kl. 17:30-18:30 og höfum það skemmtilegt á meðan við undirbúum leikrit, drama og gjörninga, fyrst og fremst í þjónustu fyrir Guð!

Ég vona bara að ég verði ekki "official" ritarinn hérna... en ég vil að allir skrifi, svona bara til að halda þessu gangandi!!!

Knús,
Tanja Rós
26. apríl 2006 klukkan 13:32
Tanja Rós Ívarsdóttir
Engin athugasemd
24apríl

úú?

úúú..

jeee töff:P

þetta er semsagt nýja síðan okkar :D

rosalega gaman að segja frá því.. :P

annars er ég víst barað skrifa eikkað ogguponslulítið fyrir hana Tönju svo að hún verði sátt :P

annars þá verðum við ossa dugleg að setja inn myndir frá æfingum og sýningum og svona..

rosa gaman :D

en já :S

fátt annað sem ég get sagt svo að..

við heyrumst bara :D


ástarkveðjur,
kisi
24. apríl 2006 klukkan 01:56
Tanja Rós Ívarsdóttir
Almennt
Engin athugasemd
24apríl

Drama sýning!

Núna þarf dramahópur Vegarins að fara í átak og láta heiminn vita hvað er að gerast innan þessara fjögurra veggja!!!

Páskamótið er nú búið og við sýndum drama við lagið "I am a thief..." og það var alveg geðveikt. Mér fannst það allavegann heppnast alveg rosalega vel!

Good Job Guys... Hérna er svona listi yfir hverjir léku hvað:

Davíð: Jesús

Benni: Þjófur

Inga Hanna: Vörður

Tinna: Vörður

Ragga: Vörður

Frikki: Vörður

Sahara Rós: "man ekki hvað hann heitir" sá sem bar kross Jesú

Tanja Rós: María

Helga: María

Ef ég hef gleymt einhverjum, fyrirgefðu... skrifið í gestabókina langt kvörtunarbréf og þá laga ég þetta alveg örugglega!

Síðan vil ég alveg sérstaklega þakka Nínu, Ingu Hönnu og Erlu Sólrúnu sem lögðu sitt alveg af mörkum til að klára þetta drama! :-)

En ég vona að fólk fari núna að skrifa á þessa síðu!!! Sjáumst á næstu dramaæfingu!!!

,

Tanja Rós
24. apríl 2006 klukkan 00:56
Tanja Rós Ívarsdóttir
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Leit

Auglýsing

Gagnasafn

Könnun

Rosalega áhugaverđ og grípandi spurning!!

Leikur dagsins